|
Gráþröstur
Fræðiheiti: Turdus pilaris.
Ætt: Þrastaætt (Turdidae).
Einkenni: Stór þröstur. Grár á höfði, hálsi og ofan við stél (gumpur). Á baki og vængjum er hann dökkbrúnn, að neðan er ljós með dökkum flikrum. Á framhálsi er hann ryðbrúnn með dökkum flikrum.
Búsvæði: Á haustin má rekast á gráþresti í trjálundum og görðum víða um land. Það er mismunandi milli ára hversu margir gráþrestir koma að haustlagi. Fer það líklega eftir veðri og vindum á fartíma hvort þeir berist til landsins. Að vetrarlagi þá halda þeir sér mest í þeim görðum þar sem fuglum er gefið.
Far: Haust- og vetrargestur. Hefur orpið nokkrum sinnum.
Varptími: Í Skandinavíu frá fyrri hluta maí og fram í júní. Verpa jafnvel tvisvar á sumri.
Fæða: Ýmsir hryggleysingjar, ber og ávextir. Að vetrarlagi þegar það eru jarðbönn þá geta þeir lifað eingöngu á ávöxtum eins og eplum. Þeir fuglar sem eru að vetrarlagi á Íslandi og koma í garða éta nær eingöngu epli. |
|
Stofnstærð:
Evrópa (varppör) |
Ísland (varppör) |
Ísland, vetur (einstaklingar) |
14.000.000-24.000.000 |
0-1 |
30-1000 |
|
|