Moka snjó

Árni gröfumaður fór inn í Veiðivötn og mokaði vatnsrásir í snjóinn. Mikill snjór er nú í vötnunum og húsin í hættu vegna væntanlegra leysinga. Líklegt er að með þessari framkvæmd hafi miklum verðmætum verið bjargað frá vatnstjóni.

Veiðivötn 2022

Verðskrá fyrir sumarið 2022 er komin á síðuna.
Eins og undanfarin ár hefur Bryndís sent út netpóst til fastra kúnna sem síðasta sumar fengu vilyrði fyrir veiðileyfum eða gistiplássi í Veiðivötnum.

Enn eiga nokkrir eftir að staðfesta gistinu og leyfi 2022. Þeir sem eiga slíkt eftir eru beðnir að staðfesta / svara póstinum.

Greiðsla þarf að berast fyrir 1. mars. 
Ef einhver telur sig eiga pöntun og hefur ekkert heyrt frá Veiðifélaginu (Bryndísi) fyrir miðjan febrúar þá þarf hann að hafa samband í síma 864-9205 eða á netfangið ampi@simnet.is
Listi yfir laus veiðileyfi eða gistipláss verður birtur á Veiðivatnavefnum  www.veidivotn.is um miðjan mars og opnað verður fyrir almenna sölu á veiðileyfum og húsplássi í byrjun apríl. 

Gjaldskrá – 2022

Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2022.

Verð fyrir hverja stöng / dag – 18. júní – 1. júlí.12.500-
Verð fyrir hverja stöng / dag – eftir 1. júlí.11.000-
5 – 7 manna hús / dag (minni hús).18.000-
8 – 12 manna hús / dag (stærri hús).22.000-
Litla herbergi í skálanum / dag (allt að 6 manna).15.000-
Stóri salur í skálanum / dag (15-20 manna).25.500-
Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag.4.000-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag (a)4.000-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag – með rafmagni (b)6.000-

Vötn sunnan Tungnaár kr. 5000- / stöng / dag.
Sauðafellsvatn kr. 5000- / stöng / dag. Ekki lengur bara fluguveiði heldur almenn veiði eins og í öðrum vötnum sunnan Tungnaár.

Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is

Veiðitölur úr vötnum sunnan tungnaár sumarið 2021

Ágæt veiði var í vötnum að Fjallabaki í sumar. Alls veiddust 2844 fiskar, 1365 urriðar og 1479 bleikjur.
Eins og oft áður veiddust flestir fiskar í Frostastaðavatni, 754 bleikjur, en Ljótipollur kom þar fast á eftir með 680 urriða. Stærsti fiskur sumarsins var 6,0 pd urriði úr Dómadalsvatni en besta meðalþyngdin var úr Ljótapolli 1,6 pd.
Sjá nánar í töflunni hér fyrir neðan.