Lokatölur frá veiðitímabilinu í Veiðivötnum eru nú komnar á vefinn.
Þyngd er skráð í pundum (1 pd = 500 gr.)
Tölurnar eru fengnar frá veiðivörðum í Veiðivötnum.
Sunnudaginn 15. september lauk veiði í Veiðivötnum. Stangveiðitímabilinu lauk 21. ágúst en veitt var í net og stöng 23. ágúst til 15. september.
Alls veiddust 30592 fiskar á veiðitímabilinu. Þetta er því þriðja besta veiðitímabilið í sögu Veiðivatna. Talsvert meira veiddist metveiðiárin 2009 og 2010. Sjá samanburð.
Alls fengust 20393 fiskar á stangveiðitímanum, 9659 urriðar og 10734 bleikjur en síðan bættust 670 stangveiddir fiskar við á netaveiðitímanum. Heildarafli stangveiddra fiska var 21063 fiskar, 10328 urriðar og 10736 bleikjur.
Flestir stangveiddir fiskar komu á land úr Snjóölduvatni, 5650 og úr Litlasjó fengust 4865 fiskar.
Þyngsti fiskurinn er 16,06 pd urriði úr Grænavatni, sem kom á land í síðustu veiðivikunni. Aldrei hafa jafnmargir stórfiskar veiðst í Veiðivötnum eins og í sumar. Stærstir voru þeir í Grænavatni en einnig veiddust óvenju stórir urriðar í Hraunvötnum og í Skálavatni. Myndir af nokkrum stórum má sjá á myndasíðu. Meðalþyngd afla úr vötnunum á stangveiðitímanum var 1,34 pd og mesta meðalþyngd er í Grænavatni 2,97 pd. Einnig var góð meðalþyngd úr Ónýtavatni fremra, Arnarpolli, Hraunvötnum og Litlasjó.
Nánari upplýsingar má finna í töflum hér fyrir neðan. Hægt er að stækka töflurnar með því að smella á þær.
Í netin fengust 9529 fiskur, 1755 urriðar og 7774 bleikjur (sjá töflu neðst á síðunni).
Veiðiupplýsingar eftir stangveiðitímann (smelltu á töfluna til að stækka).
Veiðin í hverri viku.
Samanburður fyrir árin 2011-2019 (smelltu á myndina til að stækka).
Stangveiði á netaveiðitímanum 23.8 – 15.9 2019
Veiði í net haustið 2019