Category Archives: Fiskur

Veiðivötn 2022

Verðskrá fyrir sumarið 2022 er komin á síðuna.
Eins og undanfarin ár hefur Bryndís sent út netpóst til fastra kúnna sem síðasta sumar fengu vilyrði fyrir veiðileyfum eða gistiplássi í Veiðivötnum.

Enn eiga nokkrir eftir að staðfesta gistinu og leyfi 2022. Þeir sem eiga slíkt eftir eru beðnir að staðfesta / svara póstinum.

Greiðsla þarf að berast fyrir 1. mars. 
Ef einhver telur sig eiga pöntun og hefur ekkert heyrt frá Veiðifélaginu (Bryndísi) fyrir miðjan febrúar þá þarf hann að hafa samband í síma 864-9205 eða á netfangið ampi@simnet.is
Listi yfir laus veiðileyfi eða gistipláss verður birtur á Veiðivatnavefnum  www.veidivotn.is um miðjan mars og opnað verður fyrir almenna sölu á veiðileyfum og húsplássi í byrjun apríl. 

Gjaldskrá – 2022

Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2022.

Verð fyrir hverja stöng / dag – 18. júní – 1. júlí.12.500-
Verð fyrir hverja stöng / dag – eftir 1. júlí.11.000-
5 – 7 manna hús / dag (minni hús).18.000-
8 – 12 manna hús / dag (stærri hús).22.000-
Litla herbergi í skálanum / dag (allt að 6 manna).15.000-
Stóri salur í skálanum / dag (15-20 manna).25.500-
Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag.4.000-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag (a)4.000-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag – með rafmagni (b)6.000-

Vötn sunnan Tungnaár kr. 5000- / stöng / dag.
Sauðafellsvatn kr. 5000- / stöng / dag. Ekki lengur bara fluguveiði heldur almenn veiði eins og í öðrum vötnum sunnan Tungnaár.

Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is

Lokatölur frá veiðitímanum í Veiðivötnum 2021

Lokatölur frá veiðitímabilinu í Veiðivötnum eru nú komnar á vefinn.
Þyngd er skráð í pundum (1 pd = 500 gr.)
Tölurnar eru fengnar frá veiðivörðum í Veiðivötnum.

Stangveiði í Veiðivötnum hófst 18. júni og lauk 18. ágúst. Veitt var í net og stöng 20. ágúst til 12. september (netaveiðitíminn).

Á stangveiðitímabilinu fengust 19049 fiskar, 10532 urriðar og 8517 bleikjur. Þetta er betri veiði en á síðasta ári. Munar þar mestu um meiri afla úr Litlasjó.
Flestir fiskar komu á land úr Snjóölduvatni, 4706 en úr Litlasjó fengust 4440 fiskar.
Þyngsti fiskurinn er 16,0 pd urriði úr Grænavatni. 
Stórir fiskar, um og yfir 10,0 pd fengust einnig í Skálavatni, Hraunvötnum, Ónýtavatni, Ónefndavatni, Litla Breiðavatni og Kvíslarvatnsgíg.
Á netaveiðitímanum veiddist 981 fiskur á stöng.
Heildarafli stangveiddra fiska í Veiðivötnum 2021 er 20030 fiskar, 11478 urriðar og 8552 bleikjur.
Í netin fengust 10154 fiskar, 1920 urriðar og 8234 bleikjur.

Heildarveiðin í Veiðivötnum sumarið og haustið 2021 í net og stöng er 30184 fiskar.

Sjá nánar Veiðitölur

Myndir af nokkrum stórum fiskum eru á myndasíðu.

Myndin er af stærsta fiski sumarsins, 16, 0 pd urriða úr Grænavatni. 89 cm langur og 51 cm í ummál
Veiddist á Olive dýrbít. Veiðimaður Daníel Dagur. Ljósm: Jóhann Ölvir Guðmundsson.