Nú hafa verið settar upp og teknar í notkun tvær nýjar og fullkomnar myndavélar í Veiðivötnum. Önnur er á Skemmunni þar sem gamla vélin var. Hin er staðsett á nýja húsinu Bjarkalundi. Saman ná þær yfir allt svæðið þar sem húsin standa.
Nýju vélarnar eru í miklu betri gæðum en sú gamla og mun gagnast vel til að vöktunar allan ársins hring. Einnig gefa þær gott yfirlit yfir veður og landslag.
Sími í Veiðivötnum er 864-9205. / netfang: ampi@simnet.is
Öll hús eru upppöntuð í sumar.
Laust er í svefnpokapláss á loftinu í skálanum og pláss fyrir tjöld eða hjólhýsi / tjaldvagna fyrir þá sem þess óska.
Enn eru til veiðileyfi síðari hluta júlí og í ágúst.
Veiðifélag Landmannaafréttar hefur gefið út verðskrá í Veiðivötnum fyrir sumarið 2024. (sjá töflu). Stangveiðitímabilið 2024 byrjar þriðjudaginn 18. júní kl. 15:00 og líkur þriðjudaginn 20. ágúst kl. 15:00. Netaveiðin er frá 23 ágúst til 15 september.
Á síðasta veiðisumri ákvað stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar að bjóða upp á nýtt fyrirkomulag í veiðileyfasölu í Veiðivötnum. Aftur verður boðið uppá dagleyfi í Veiðivötnum sumarið 2024. Á tímabilinu 1. júlí – 15. sept. verður hægt að kaupa dagsleyfi án gistingar í Veiðivötnum. Leyfin gilda frá kl. 7 að morgni og til miðnættis. Leyfin þarf að panta fyrirfram deginum áður og þarf að ganga frá greiðslu um leið og pantað er. Verð á veiðileyfi verður samkvæmt útgefinni verðskrá fyrir veiðileyfi í júlí-sept kr. 13000- á stöng á dag. Viðkomandi fær sendar banka upplýsingar og greiðir veiðileyfið og sendir jafnframt upplýsingar um tegund, lit og númer á bílnum sem sem komið er á. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi kvöldið fyrir komu í Veiðivötn. Veiðimaður má byrja að veiða kl. 7 en kemur svo við í Varðbergi og sækir veiðileyfið um kl. 9 -10 um morguninn.
Skilar veiðileyfinu útfylltu við brottför.
Aðbúnaður í húsum.
Hús og önnur gistiaðstaða er mjög góð í Veiðivötnum. Rennandi vatn er í öllum húsum og þau eru öll tengd rafmagni. Í hverju húsi eru 2 hellur, tenglar, ljós og rafmagnsofnar. Salerni eru í öllum húsum nema Gamla Dvergasteini. Eins og áður þurfa gestir að hafa með sér potta, pönnur, hnífapör og annan borðbúnað. Mjög gott símasamband (3G) er víðast hvar á Veiðivatnasvæðinu.
Veiðitölur fyrir sumarið 2023. Alls veiddist 1591 fiskur í vötnum sunnan Tungnaár sumarið 2023, 1095 bleikjur og 496 urriðar. Flestir fiskar veiddust í Frostastaðavatni, 875, mest smábleikja. Stærsti fiskurinn var 5 pd urriði úr Ljótapolli. Mesta meðalþyngdin var í Dómadalsvatni 2,6 pd.
Í Sauðafellsvatni voru 49 fiskar skráðir, en erfiðlega gékk að fá upplýsingar um afla frá veiðimönnum.
Veiðivertíðinni í Veiðivötnum lauk sunnudaginn 17. september kl.15. Sumarið var einstaklega gott uppi á hálendinu og mikil veiði.
Alls veiddust 33798 fiskar á stangveiðitímabilinu, 15415 urriðar og 9140 bleikjur. Þetta var þriðja mesta veiði frá upphafi skráningar í Veiðivötnum. Aðeins 2009 og 2010 voru betri.
Á stangveiðitímanum fengust 23372 fiskar, 14285 urriðar og 9087 bleikjur. Þetta er talsvert betri veiði en undanfarin sumur. Á stangveiðitímanum veiddist mest í Litlasjó. Þar kom 6101 urriði á land. Urriðaveiði var einnig góð í Stóra-Fossvatni, Hraunvötnum og í Ónýtavatni. Mest veiddist af bleikju í Snjóölduvatni (3024) og Langavatni (1990).
Stærsti urriði sumarsins veiddist í Skálavatni. Hann var 8,2 kg (16,4 pd).
Í Ónefndavatni, Hraunvötnum og Litlasjó fengust nokkrir 10-11 pd urriðar. Stærsta bleikjan var 2,5 kg (5 pd) og veiddist í Breiðavatni.
Á netaveiðitímanum 25. ágúst til 17. september fengust 1183 fiskar á stöng og 9243 í net.
Smelltu á krækjurnar hér fyrir neðan og skoðaðu nánar veiði og myndir af afla og veiðimönnum.