Stangveiði í Veiðivötnum hefst kl. 15 þann 18. júní og lýkur kl. 15 þriðjudaginn 22. ágúst. Netaveiði veiðirétthafa hefst föstudaginn 25. ágúst og lýkur kl. 15. sunnudaginn 17. september
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2023.
Verð fyrir hverja stöng / dag – 18. júní – 1. júlí. | 13.500- |
Verð fyrir hverja stöng / dag – eftir 1. júlí. | 12.000- |
5 – 7 manna hús / dag (minni hús). | 19.500- |
8 – 12 manna hús / dag (stærri hús). | 24.000- |
Litla herbergi í skálanum / dag (allt að 6 manna). | 16.500- |
Stóri salur í skálanum / dag (15-20 manna). | 28.000- |
Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag. | 4.500- |
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag (a) | 4.500- |
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag – með rafmagni (b) | 6.500- |
Hús og önnur gistiaðstaða er mjög góð í Veiðivötnum. Rennandi vatn er í öllum húsum og þau eru öll tengd rafmagni. Í hverju húsi eru 2 hellur, tenglar, ljós og rafmagnsofnar. Salerni eru í öllum húsum nema Gamla Dvergasteini. Eins og áður þurfa gestir að hafa með sér potta, pönnur, hnífapör og annan borðbúnað.
Mjög gott símasamband (3G) er víðast hvar á Veiðivatnasvæðinu.
ATH. Þetta á aðeins við um hús í Veiðivötnum, en á ekki við um gistiaðstöðu við Landmannahelli (vötn sunnan Tungnaár).
Vötn sunnan Tungnaár kr. 5000- / stöng / dag.
Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is