Category Archives: Fólk

Veiðivötn 2023

Veiði í Veiðivötnum hófst sunnudaginn 18. júní kl. 15:00. Öll veiðileyfi eru uppseld í júní en hægt að fá leyfi í júlí og ágúst (sjá eldri frétt).

Svæðið er komið í sumarbúning. Ís er löngu horfinn af vötnunum og síðustu skaflarnir að bráðna. Vatnshæð í efri vötnum er nærri meðallagi. 

Vegir eru flestir greiðfærir og vöðin yfir árnar eru mjög góð. Fært er í Skyggnisvatn en aðeins fyrir fjórhjóladrifs bíla. Leiðin í Veiðivötn er sem fyrr aðeins fær jeppum og jepplingum.

Sökum snjóleysis verða veiðimenn að hafa með sér ís og góð kælibox undir veiðina, ætli þeir sér að varðveita aflann. Skaflinn góði í Miðmorgunsöldu er horfinn (sjá mynd frá 22. júní hér að ofan).

Sem fyrr eru veiðimenn og aðrir gestir í Veiðivötnum hvattir til að ganga vel um viðkvæma náttúru vatnasvæðisins, halda sig á vegslóðum og hirða upp eftir sig allt rusl.

Hermannsvík í Litlasjó 13. júní 2023.

Nýjung í Veiðivötnum

sími 864-9205 / netfang: ampi@simnet.is

Stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar ákvað í vor að bjóða upp á nýtt fyrirkomulag í veiðileyfasölu í Veiðivötnum. Í júlí verður hægt að kaupa dagsleyfi án gistingar. Leyfin gilda frá kl. 7 að morgni og til miðnættis. Leyfin þarf að panta fyrirfram (í síðasta lagi deginum áður) og þarf að ganga frá greiðslu um leið og pantað er. Verð á veiðileyfi verður samkvæmt útgefinni verðskrá fyrir veiðileyfi í júlí kr. 12000- á stöng á dag. Viðkomandi fær sendar banka upplýsingar og greiðir veiðileyfið og sendir jafnframt upplýsingar um tegund, lit og númer á bílnum sem sem komið er á. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi kvöldið fyrir komu í Veiðivötn.
Veiðimaður má byrja að veiða kl. 7 en kemur svo við í Varðbergi og sækir veiðileyfið um kl. 9 -10 um morguninn.

Skilar veiðileyfinu útfylltu við brottför.

Staðfesta Veiðivötn 2023

Nú er Bryndís búin að senda fastagestum tilkynningu um gistingu og veiðileyfi í Veiðivötnum sumarið 2023. Hún biður þá sem hafa fengið póst um að staðfesta móttöku og muna eftir að borga fyrir 1. mars.

Alltaf eru einhverjir sem telja sig eiga inni veiðileyfi og gistipláss en hafa ekki fengið tilkynningu frá Bryndísi. Þeir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hana sem fyrst.

Veiðileyfi og gistipláss sem ekki er búið að greiða fyrir 1. mars eða ráðstafa fara síðan í almenna sölu í byrjun apríl 2023.

Veiðivötn 2023

Stangveiði í Veiðivötnum hefst kl. 15 þann 18. júní og lýkur kl. 15 þriðjudaginn 22. ágúst. Netaveiði veiðirétthafa hefst föstudaginn 25. ágúst og lýkur kl. 15. sunnudaginn 17. september

Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2023.

Verð fyrir hverja stöng / dag – 18. júní – 1. júlí.13.500-
Verð fyrir hverja stöng / dag – eftir 1. júlí.12.000-
5 – 7 manna hús / dag (minni hús).19.500-
8 – 12 manna hús / dag (stærri hús).24.000-
Litla herbergi í skálanum / dag (allt að 6 manna).16.500-
Stóri salur í skálanum / dag (15-20 manna).28.000-
Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag.4.500-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag (a)4.500-
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag – með rafmagni (b)6.500-

Hús og önnur gistiaðstaða er mjög góð í Veiðivötnum. Rennandi vatn er í öllum húsum og þau eru öll tengd rafmagni. Í hverju húsi eru 2 hellur, tenglar, ljós og rafmagnsofnar. Salerni eru í öllum húsum nema Gamla Dvergasteini. Eins og áður þurfa gestir að hafa með sér potta, pönnur, hnífapör og annan borðbúnað
Mjög gott símasamband (3G) er víðast hvar á Veiðivatnasvæðinu. 

ATH. Þetta á aðeins við um hús í Veiðivötnum, en á ekki við um gistiaðstöðu við Landmannahelli (vötn sunnan Tungnaár).

Vötn sunnan Tungnaár kr. 5000- / stöng / dag.
Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is