Sími í Veiðivötnum er 864-9205.
ATH. Stranglega er bannað að hlaða rafbíla / tengirafbíla í Veiðivötnum. Rafmagnstengingar í húsunum eru veikbyggðar og hleðsla rafbíls getur hæglega leitt til íkveikju.
Rafbílaeigendum er bent á góða og örugga hleðslu í Hrauneyjum.
Veiðitölur 2026 – uppfært vikulega (föstudagar)
Myndir af veiði og veiðimönnum sumarið 2026
Ef þú saknar einhvers eftir veiðiferð í Veiðivötn, þá skaltu endilega skoða síðuna um óskilamuni.
Stangveiðitímabilið byrjar þann 18. Júní kl. 15:00 og lýkur þann 18. ágúst kl. 15:00.

Ástand lífríkisins í Veiðivötnum er heldur lakara en undanfarin ár. Vorið var kalt og ís nýfarinn af Litlasjó og Grænavatni. Vatnsstaðan er hærri en á síðasta ári.
Allar leiðir eru færa á vatnasvæðinu nema í Skyggnisvatn. Vöðin eru góð en sem fyrr ekki fær venjulegum fólksbílum.

Skaflinn góði utan í Miðmorgunsöldu er að hverfa. Veiðimenn eru hvattir til að hafa með sér ís / klaka til kælingar á afla. Feitur silungur er fljótur að skemmast ef ekki er kælt.
Gott ráð er að frysta vatn í ölflöskum og nota sem kælikubba og vera með góða kælikassa.
Sem fyrr eru veiðimenn minntir á að ganga vel um veiðistaði. Gróður er mjög viðkvæmur viðkvæmur í Veiðivötnum. Varist að fara nærri hreiðrum. Hafið hunda ávallt tjóðraða á svæðinu. Best er að skilja hundana eftir heima.
Gjaldskrá 2026
ATH: Allt gistipláss í húsum er uppselt í Veiðivötnum.
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum og í vötnum sunnan Tungnaár fyrir sumarið 2026.

Tilmæli til veiðimanna í Grænavatni. Stjórn Veiðifélags Landmannaafréttar biður veiðimenn sem veiða og sleppa fiskum í Grænavatni að skrá fjölda og áætla þyngd og lengd fiskanna. Þetta á ekki að koma fram í veiðiskýrslum viðkomandi veiðimanna, heldur á að senda upplýsingarnar í tölvupósti á ampi@simnet.is
Ekki nota laxahrogn
Nokkuð hefur borið á því undanfarið að veiðimenn séu að nota laxahrogn í Veiðivötnum. Notkun laxahrogna sem beitu er bönnuð í vötnunum. Bannið var sett á fyrir mörgum árum eftir að kýlaveiki gerði vart við sig í göngu- og eldislaxi hér við land.
Hrognin geta einnig verið smitberar á ýmsum öðrum sjúkdómum sem ganga í laxfiskum og geta auðveldlega borið smit í lokuð og viðkvæm fjallavötn. Ekki viljum við eyðileggja Veiðivötnin með slíku.
Vilji menn endilega nota hrogn sem beitu þá skal nota hrogn úr saman vatni og veitt er í og alls ekki nota bleikjuhrogn í urriðavatni.
Um aðbúnað í veiðihúsum í Veiðivötnum
Í öllum húsunum í Veiðivötnum er: rafmagn, eldavélarhella, örbylgjuofn, kaffivél, heitt og kalt vatn, rafljós og þilofnar. Vatnssalerni er í öllum húsum nema í gamla Dvergasteini.
Gestir þurfa að hafa með sér eigin borðbúnað, diska og hnífapör.
Gott farsímasamband er á öllu Veiðivatnasvæðinu. Þó er sumsstaðar lítið samband í djúpum gígholum. Farsímasendar eru uppi á Snjóöldufjallgarði og á Vatnsfelli.
Sími í Veiðivötnum er 864-9205.











