Veiði í Veiðivötnum hefst 18. júní 2025 kl. 15:00. Verðskrá fyrir sumarið 2025 er komin á Veiðivatnasíðuna.
Eins og undanfarin ár mun Bryndís senda út netpóst í janúar og febrúar til fastra kúnna sem síðasta sumar fengu vilyrði fyrir veiðileyfum eða gistiplássi í Veiðivötnum.
Viðkomandi þarf síðan að staðfesta gistinu og leyfi og greiða fyrir 1. mars 2025.
Listi yfir laus veiðileyfi eða gistipláss verður birtur á Veiðivatnavefnum www.veidivotn.is um miðjan mars og opnað verður fyrir almenna sölu á veiðileyfum og húsplássi í byrjun apríl.
Allri veiði í Veiðivötnum lauk 15. september. Alls veiddust 27963 fiskar á tímabilinu. Þar af fengust 12568 urriðar og 15395 bleikjur. Þetta eru nokkuð lægri tölur en undanfarin ár. Veðrið í sumar spilar þar eflaust eitthvað inni, frekar kalt og á köflum hvasst. Fáir sólardagar. Einnig var netaveiðin óvenju léleg miðað við undanfarin ár. Sjá töflur og gröf.
Stangveiðitímanum í Veiðivötnum lauk þriðjudaginn 20. ágúst. Alls fengust 20321 fiskur, 10595 urriðar og 9726 bleikjur. Veiðin var ekki eins góð og sumarið 2023 sem var mjög gott veiðiár. Munar þar mestu um lakari veiði í Litlasjó sumarið 2024. Leiðinlegu veðri í júlí og ágúst má kenna um að hluta, en einnig virðist nóg fæða í vötnunum og næringarástand fiskanna mjög gott víðast hvar þetta árið. Veiðin var þó mun betri en sumrin 2022 og 2021. Flestir urriðar komu á land í Litlasjó, 4368 fiskar, en Stóra Fossvatn var næst með 2086 fiska. Af bleikjuvötnunum var mestur afli, 3892 fiskar í Snjóölduvatni og 2255 bleikjur í Langavatni.
Netaveiði veiðirétthafa stóð frá 23. ágúst til 15. september. Á netaveiðitímanum var einnig leyfð veiði á stöng. Í netin komu 6765 fiskar, þar af 1100 urriðar úr Litlasjó (leyfð veiði í innri hluta) og 5665 bleikjur úr bleikjuvötnum. Stangveiði á netatímanum var frekar dræm þessar fjórar vikur. Aðeins fengust 877 fiskar, þar af 4 bleikjur.
Nú hafa verið settar upp og teknar í notkun tvær nýjar og fullkomnar myndavélar í Veiðivötnum. Önnur er á Skemmunni þar sem gamla vélin var. Hin er staðsett á nýja húsinu Bjarkalundi. Saman ná þær yfir allt svæðið þar sem húsin standa.
Nýju vélarnar eru í miklu betri gæðum en sú gamla og mun gagnast vel til að vöktunar allan ársins hring. Einnig gefa þær gott yfirlit yfir veður og landslag.
Líkt og undanfarin ár veiddist best í Frostastaðavatni. Þar komu 750 fiskar á land, mest bleikja. Einnig var góð veiði í Löðmundarvatni, Ljótapolli og í Dómadalsvatni. Því miður hefur verið misbrestur á því að veiðimenn skili inn veiðiupplýsingum úr vötnum sunnan Tungnaár. Því ber að taka þessum tölum með góðum fyrirvara. Veiðin hefur líklega verið mun meiri.