All posts by 0rn

GISTIPLÁSS

Sími í Veiðivötnum er: 864-9205

Laust hús: 23.-26. júní Bjalli stórt hús.

Laust hús: 7.-8. júlí Lindarhvammur lítið hús.

Annars er gistipláss í húsum uppselt í Veiðivötnum í sumar. Enn er hægt að fá svefnpokapláss í stóra skálanum í júlí og ágúst.

Síðan er alltaf hægt að gista á tjaldstæði.

Veiðivötn 2025

Sími í Veiðivötnum er 864-9205 / Netfang: ampi@simnet.is

MYNDIR AF VEIÐI- OG VEIÐIMÖNNUM SUMARIÐ 2025

Veiðitíminn er frá kl. 7 á morgnanna til miðnættis (kl. 24).
Veiðiverðir vilja biðja þá sem koma seint í hús að fara hljóðlega og sýna öðrum tillitssemi.

Allt skal komið í ró kl. 1 eftir miðnætti.

Stangveiðiitímabilið 2025 byrjar 18. júní kl. 15:00 og líkur 19. ágúst kl. 15.
Allar leiðir eru nú vel færar nema í Skyggnisvatn. Varað er við slæmum hvörfum í þjóðveginn á milli Þjórsárbrúar við Sultartanga og upp að Haldi. Endilega farið varlega.
Vatnshæð í Hraunvötnum og Litlasjó er hagstæðari en í byrjun síðasta veiðitíma.
ATH. Skaflinn í Miðmorgunsöldu er horfinn svo veiðimenn sem kjósa að varðveita aflann verða að hafa með sér ís til kælingar.

Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2025.

Veiði er frí fyrir börn 13 ára og yngri. 

Afbókunarskilmálar eru þeir að ef afbókað er seinna en einni viku fyrir komudag fæst aðeins 50% upphæðarinnar pöntunar endurgreidd.

Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is

Í Veiðivötnum er hægt að kaupa gistingu í 6-12 manna skálum og í 40 manna sæluhúsi. Vatnssalerni er í öllum húsum nema í gamla Dvergasteini. Lyklar að húsum eru afhentir hjá veiðivörðum í Varðbergi við komu í Veiðivötn.
ATH. Þetta á aðeins við um hús í Veiðivötnum, en á ekki við um gistiaðstöðu við Landmannahelli (vötn sunnan Tungnaár).

6-8 manna skálar
Foss, Holt, Land, Lindarhvammur, Vindheimar, Dvergasteinn
40 manna sæluhús
Salur (18), L-herbergi (6) og svefnloft
8-12 manna skálar
Ampi, Nýberg, Bjalli, Hraunkot, Setur, Sel, Arnarsetur, Hvammur, Vatnaver
Varðberg
aðstaða veiðivarða

Áfram verða í boði dagleyfi í Veiðivötnum sumarið 2025.
Á tímabilinu 1. júlí – 19. ágúst. verður hægt að kaupa dagsleyfi án gistingar í Veiðivötnum. Leyfin gilda frá kl. 7 að morgni og til miðnættis. 
Leyfin þarf að panta fyrirfram deginum áður og þarf að ganga frá greiðslu um leið og pantað er. Verð á veiðileyfi verður samkvæmt útgefinni verðskrá fyrir veiðileyfi í júlí-sept kr. 13500- á stöng á dag. Viðkomandi fær sendar banka upplýsingar og greiðir veiðileyfið og sendir jafnframt upplýsingar um tegund, lit og númer á bílnum sem sem komið er á. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi kvöldið fyrir komu í Veiðivötn.
Veiðimaður má byrja að veiða kl. 7 en kemur svo við í Varðbergi og sækir veiðileyfið um kl. 9 -10 um morguninn.

Um aðbúnað í veiðihúsum í Veiðivötnum
Í öllum húsunum í Veiðivötnum er: rafmagn, eldavélarhella, heitt og kalt vatn, rafljós og þilofnar. Vatnssalerni er í öllum húsum nema í gamla Dvergasteini. 
Gott farsímasamband (G3) er á öllu Veiðivatnasvæðinu. Þó er sumsstaðar lítið samband í djúpum gígholum. Farsímasendar eru uppi á Snjóöldufjallgarði og á Vatnsfelli. 
Sími í Veiðivötnum er: 864-9205
Netfang: ampi@simnet.is

Nokkur heilræði
Ekki er selt eldsneyti í Veiðivötnum. Næsta verslun, veitingasala og eldsneytissala er í Hrauneyjum. 
Ekki er aðstaða til að hlaða rafbíla í Veiðivötnum. Sull í ám og fínn sandur er ekki talið fara vel í rafbíla. Eigendur slíkra farartækja ættu að kynna sér vel þol bílsins gagnvart sandi og vatni áður en lagt er af stað í Veiðivatnaferð.

Veiðimenn eru hvattir til að ganga varlega um viðkvæma hálendisnáttúruna í Veiðivötnum. Varp margra fuglategunda er í júní og fram eftir júlí og nýgræðingur og mosi sérlega viðkvæmur fyrir traðki. Minnt er á að allur akstur utan merktra slóða er bannaður.

Utanvegaakstur
Akið ekki utan vega og ekki búa til nýjar slóðir ef sú gamla er ófær. Gangið frekar á veiðistaðinn. Akstur á viðkvæmum gróðri getur leitt til mikilla rofskemmda á skömmum tíma. 

Hundafólki er bennt á að passa vel uppá hunda sína á svæðinu. 
Brögð eru að því að hundar þefi uppi beituleifar og öngla á vatnsbökkum. Slíkt hefur leitt til innvortis blæðinga og dauða. 
Varp fugla er í hámark í lok júní og margar tegundir liggja á eggjum fram í miðjan júlí. Hundar eyðileggja varp fugla ekki síður en minkar og refir. Þetta á ekki hvað síst við um svæðið umhverfis Tjaldvatn og skálana en þar eru alltaf nokkur anda- og óðinshanahreiður. Hafið því hundana ávallt tjóðraða á svæðinu. Best er að skilja hundana eftir heima.

Veiðifélag Landmannaafréttar – erindi til veiðirétthafa 2025

Lokatölur úr veiði í Veiðivötnum 2024

Allri veiði í Veiðivötnum lauk 15. september. Alls veiddust 27963 fiskar á tímabilinu. Þar af fengust 12568 urriðar og 15395 bleikjur. Þetta eru nokkuð lægri tölur en undanfarin ár. Veðrið í sumar spilar þar eflaust eitthvað inni, frekar kalt og á köflum hvasst. Fáir sólardagar. Einnig var netaveiðin óvenju léleg miðað við undanfarin ár. Sjá töflur og gröf.

Stangveiðitímanum í Veiðivötnum lauk þriðjudaginn 20. ágúst.
Alls fengust 20321 fiskur, 10595 urriðar og 9726 bleikjur. Veiðin var ekki eins góð og sumarið 2023 sem var mjög gott veiðiár. Munar þar mestu um lakari veiði í Litlasjó sumarið 2024.
Leiðinlegu veðri í júlí og ágúst má kenna um að hluta, en einnig virðist nóg fæða í vötnunum og næringarástand fiskanna mjög gott víðast hvar þetta árið.
Veiðin var þó mun betri en sumrin 2022 og 2021.
Flestir urriðar komu á land í Litlasjó, 4368 fiskar, en Stóra Fossvatn var næst með 2086 fiska.
Af bleikjuvötnunum var mestur afli, 3892 fiskar í Snjóölduvatni og 2255 bleikjur í Langavatni.

Netaveiði veiðirétthafa stóð frá 23. ágúst til 15. september.
Á netaveiðitímanum var einnig leyfð veiði á stöng.
Í netin komu 6765 fiskar, þar af 1100 urriðar úr Litlasjó (leyfð veiði í innri hluta) og 5665 bleikjur úr bleikjuvötnum.
Stangveiði á netatímanum var frekar dræm þessar fjórar vikur. Aðeins fengust 877 fiskar, þar af 4 bleikjur.

Veiðitölur úr Veiðivötnum 2024

Myndir af veiði og veiðimönnum sumarið 2024

Stærsti fiskur sumarsins var 6.22 kg. urriði sem veiddist í Hraunvötnum.
Veiðimaðurinn er Þröstur Þorláksson.

Í sumar hafa safnast upp hlutir sem hafa orðið eftir í Veiðivötnum.
Á síðunni “óskilamunir í Veiðivötnum” eru myndir af hlutunum.

Veitt í klak

Dagana 27. – 28. september kom vaskur hópur veiðimanna inn í Veiðivötn og veiddi urriða í klak. Þetta er gert á hverju hausti í lok september.

Hreinsað úr neti í Fyrstu vík í Litlasjó 27. september 2024


Að þessu sinni gékk veiðin mjög vel. Veitt var á þremur stöðum í Litlasjó og Stóra Hraunvatni.
Teknar voru 40 hrygnur og 9 hængar. Fimm til sex punda fiskar gefa bestan árangur í klakinu.

Klakveiðimenn efst í Stóra Hraunvatni


Fiskarnir eru fluttir til byggða og klak fer fram í eldisstöðinni í Götu í Holta- og Landsveit.
Seiðin eru alin í 1-2 ár í stöðinni fyrir sleppingu í Veiðivötn. Til að viðhalda jöfnum og góðum fiskistofnum í urriðavötnum með lök hrygningaskilyrði þá eru seiðasleppingar nauðsynlegar. Bleikjan bjargar sér sjálf og engin þörf fyrir sleppingu bleikjuseiða.
Myndirnar voru teknar 27. september.