ATH: Þann 1. mars átti að vera búið að greiða fyrir forpantað gistipláss í Veiðivötnum.
Þeir sem ekki hafa enn greitt eru vinsamlega beðnir að hafa samband og gera grein fyrir sinni stöðu fyrir 15. mars.
Einnig hafa nokkrar greiðslur borist fyrir gistipláss sem ekki er skráð hjá Bryndísi.
Þann 15. mars kemur á Veiðivatnavefinn listi yfir laus hús sem fara á sölu 1. apríl kl. 9.00.
Aðeins verður hægt að panta í síma 864-9205.
13. febrúar 2026.
Í janúar og í febrúar hefur Bryndís haft samband við fasta viðskiptavini í Veiðivötnum
Hún telur sig nú búna að hafa samband við alla sem næst í.
Einhverjir gætu hafa skipt um netfang eða símanúmer.
Þeir sem telja sig vera fastir viðskiptavinir í Veiðivötnum og hafa ekki fengið póst eða upphringingu frá Bryndísi eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 864-9205.
Undirbúningur fyrir veiðisumarið 2026 er nú hafinn.
Stangveiðitímabilið byrjar þann 18. Júní kl. 15:00 og lýkur þann 18. ágúst kl. 15:00.
Greiða þarf fyrir gistipláss / veiðileyfi við pöntun og í síðasta lagi 1. mars. Afbókunarskilmálar eru þeir að ef afbókað er seinna en einni viku fyrir komudag fæst aðeins 50% upphæðarinnar pöntunar endurgreidd.
Þann 15. mars kemur listi á Veiðivatnavefinn yfir laus hús og stangir sem verða til sölu byrjun aprílmánaðar.
Nýliðar sem vilja tryggja sér gistipláss eða veiðileyfi sumarið 2026 verða að bíða þolinmóðir þar til í apríl þegar sala á lausum húsum/leyfum hefst.
Sími í Veiðivötnum er 864-9205 og aðeins verður hægt að panta með símtali við Bryndísi.
Gjaldskrá 2026
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum og í vötnum sunnan Tungnaár fyrir sumarið 2026.
