Sími í Veiðivötnum er 864-9205 / Netfang: ampi@simnet.is
Veiðitíminn er frá kl. 7 á morgnanna til miðnættis (kl. 24).
Veiðiverðir vilja biðja þá sem koma seint í hús að fara hljóðlega og sýna öðrum tillitssemi.
Allt skal komið í ró kl. 1 eftir miðnætti.
Stangveiði í Veiðivötnum hefst kl. 15 þann 18. júní og lýkur kl. 15 þriðjudaginn 22. ágúst.
Gjaldskrá á veiðileyfum og gistingu (hús, svefnpokapláss í skála, tjaldstæði og húsbílar/tjaldvagnar) í Veiðivötnum fyrir sumarið 2023.
Verð fyrir hverja stöng / dag – 18. júní – 1. júlí. | 13.500- |
Verð fyrir hverja stöng / dag – eftir 1. júlí. | 12.000- |
5 – 7 manna hús / dag (minni hús). | 19.500- |
8 – 12 manna hús / dag (stærri hús). | 24.000- |
Litla herbergi í skálanum / dag (allt að 6 manna). | 16.500- |
Stóri salur í skálanum / dag (15-20 manna). | 28.000- |
Svefnpokapláss á loftinu í skálanum / mann / dag. | 4.500- |
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag (a) | 4.500- |
Verð fyrir hvert tjald / tjaldvagn / húsbíl á tjaldstæði / dag – með rafmagni (b) | 6.500- |
Pantanir og fyrirspurnir fyrir “Vötn Sunnan Tungnaár” í síma 893-8407 eða info@landmannahellir.is
Í Veiðivötnum er hægt að kaupa gistingu í 6-12 manna skálum og í 40 manna sæluhúsi. Vatnssalerni er í öllum húsum nema í gamla Dvergasteini. Lyklar að húsum eru afhentir hjá veiðivörðum í Varðbergi við komu í Veiðivötn.

Foss, Holt, Land, Lindarhvammur, Vindheimar, Dvergasteinn

Salur (18), L-herbergi (6) og svefnloft

Ampi, Nýberg, Bjalli, Hraunkot, Setur, Sel, Arnarsetur, Hvammur, Vatnaver

aðstaða veiðivarða
Um aðbúnað í veiðihúsum í Veiðivötnum
Í öllum húsunum í Veiðivötnum er: rafmagn, eldavélarhella, heitt og kalt vatn, rafljós og þilofnar. Vatnssalerni er í öllum húsum nema í gamla Dvergasteini.
Gott farsímasamband (G3) er á öllu Veiðivatnasvæðinu. Þó er sumsstaðar lítið samband í djúpum gígholum. Farsímasendar eru uppi á Snjóöldufjallgarði og á Vatnsfelli.
Sími í Veiðivötnum er: 864-9205
Netfang: ampi@simnet.is
Nokkur heilræði
Ekki er selt eldsneyti í Veiðivötnum. Næsta verslun, veitingasala og eldsneytissala er í Hrauneyjum.
Ekki er aðstaða til að hlaða rafbíla í Veiðivötnum. Sull í ám og fínn sandur er ekki talið fara vel í rafbíla. Eigendur slíkra farartækja ættu að kynna sér vel þol bílsins gagnvart sandi og vatni áður en lagt er af stað í Veiðivatnaferð.
Veiðimenn eru hvattir til að ganga varlega um viðkvæma hálendisnáttúruna í Veiðivötnum. Varp margra fuglategunda er í júní og fram eftir júlí og nýgræðingur og mosi sérlega viðkvæmur fyrir traðki. Minnt er á að allur akstur utan merktra slóða er bannaður.

Hundafólki er bennt á að passa vel uppá hunda sína á svæðinu.
Brögð eru að því að hundar þefi uppi beituleifar og öngla á vatnsbökkum. Slíkt hefur leitt til innvortis blæðinga og dauða.
Varp fugla er í hámark í lok júní og margar tegundir liggja á eggjum fram í miðjan júlí. Hundar eyðileggja varp fugla ekki síður en minkar og refir. Þetta á ekki hvað síst við um svæðið umhverfis Tjaldvatn og skálana en þar eru alltaf nokkur anda- og óðinshanahreiður. Hafið því hundana ávallt tjóðraða á svæðinu. Best er að skilja hundana eftir heima.